Víravirki.is býður upp á verðmat fyrir þjóðbúninga og þjóðbúningaskart í samstarfi við fagaðila, þ.e.a.s. gullsmiði sem sérhæfa sig í þjóðbúningaskarti og kjólameistara sem sérhæfir sig í þjóðbúningasaum.
Verðmat kostar að lágmarki 20.000 kr (vsk innifalinn í verði). Fyrir umfangsmikið verðmat getur verðmat verið hærra og er það metið í samráði við eiganda hverju sinni. Hér er átt við þegar komið er með mikið magn af skarti og flíkum, t.d. 3 sett af búningum eða sambærilegt.
Fyrirkomulag verðmats:
- Skart og flíkur þarf að koma með til okkar í persónu og skilja eftir í nokkra daga.
- Víravirki.is bókar tíma með gullsmið og kjólameistara og setur verðmat fram á þar til skilið verðmats form.
- Skart og flíkur er afhent þegar verðmat liggur fyrir og greiðsla fer fram samhliða afhendingu. Hægt er að greiða fyrir verðmat í posa, með millifærslu eða í seðlum.
Til að bóka tíma í verðmat er best að fylla út neðangreint form eða senda okkur póst á viravirki @ viravirki.is