Hvernig finn ég stærðina mína?

Hvernig finnur þú réttu stærðina af þjóðbúning fyrir þig eða þína?

Það getur verið dálítil kúnst að finna notaðan þjóðbúning sem passar vel, en besta leiðin er að finna sín mál áður en lengra er haldið.

Sniðin eru oft frábrugðin venjulegum fatastærðum þar sem búningar eru oftar en ekki sérsniðnir að hverri og einni konu, svo það er best að grípa mælibandið.

Hér eru þær 4 mælingar sem skipta mestu máli:

📏 Ummál yfir brjóst (B-lína á mynd): Mældu yfir fyllsta hluta brjóstkassans (gott að vera í þeirri tegund brjóstahaldara sem þú ætlar að nota við búninginn).

📏 Mittismál (C-lína á mynd): Mældu þar sem búningurinn á að sitja, oftast um mjóasta hluta mittisins.

📏 Baklengd (E-lína á mynd): Mældu aftan á bakinu, frá hálshryggjaliðnum og niður að mittislínu. Hér er gott myndband sem sýnir þetta aðeins betur. Athugið að myndbandið er á ensku.

📏 Sídd á pilsi (I-lína á mynd): Mældu frá mittinu og niður að þeim stað þar sem þú vilt að pilsið endi, oftast kringum ökkla.

Önnur mál sem gott er að hafa upp á Peysufatapeysur og skyrtur er ermalengdin:

📏 Ermalengd (G-lína á mynd): Mældu frá öxl að úlnlið.

Gott ráð: Það getur verið gott að fá einhvern til að hjálpa sér við mælingarnar svo bandið liggi alveg beint eða vera fyrir framan spegil.