Notað!

Heilt sett – 20.aldar upphlutur, pils, skyrtur o.fl.

Original price was: 963.000 kr..Current price is: 423.000 kr..

Innifalið í settinu:

  • Upphlutur með skarti
  • 2 stk Pils
  • 3 svuntur
  • Skotthúfa með skúf og skúfhólk
  • Beltispar á flauelsbelti
  • Doppur 8 stk
  • Næla
  • Ermahnappar
  • Svuntupar
  • 3 stk slifsi
  • 1 stk peysubrjóst
  • Prjónaðir hanskar

Sjá nánar í vörulýsingu.

Einnig hægt að kaupa staka muni/flíkur.

Vara er uppseld eða frátekin.

Vörulýsing

Allt skart er úr handgerðu víravirki

  1. Upphlutur með gylltu silfri
    • Millusett úr víravirki með 8 millum ásamt reim og nál – Ástand:  Þarrfnast hreinsunar
    • Balderaðir borðar – Ástand: Þræðir farnir að losna
    • Stærð upphluts: Small/medium
    • Bolur úr svörtu satínefni, 74 cm í mitti og 88 cm yfir brjóst. Ástand: Farið að sjá á og fylgir með setti
  2. Tvö pils og tvær svuntur
    • Pils 1 – Satínefni: Stærð á pilsi: sídd 98 cm og mittismál 72-80 cm – Ástand: Gott
    • Pils 2 – Satínefni: Stærð á pilsi:sídd 100 cm og mittismál 65-70 cm – Ástand: Ansi þreytt og fylgir með setti
    • Svunta 1 – Hvít blúnda:  sídd 76 cm og mittismál ca 75-81 cm: Ástand: mjög gott, lítið notuð
    • Svunta 2 – Svart chiffon/polyester: sídd 76 cm og mittismál 80 cm: Ástand: Gott
  3. Flauelbelti með beltispari og 8 doppum
    • Beltispar: Skjöldur 5,35 cm í þvermál, stokkar 6,4 cm á lengd (festing meðtalin) og breidd 2,8 cm. samtals lengd: 15,5 cm
    • Doppur 8 stk : 3,4 cm á lengd og breidd
    • Lengd á belti 74cm, stytt. Hægt að losa handsaum og lengja ummálið.
  4. Húfa með skarti
    • Skotthúfa úr flauel, þvermál: 19 cm
    • Skúfhólkur, 5,3 cm að lengd og 1,46 cm í þvermál. Ástand: Gott, mætti hreinsa
    • Skúfur, 35 cm að lengd
  5. Skart
    • Næla, lítil: 2,8 cm í þvermál
    • Ermahnappar: 1,58 cm í þvermál
    • Svuntupar: 4,7 cm lengd og 1,5 cm í breidd (víðast)
  6. Aukahlutir
    • Slifsi – Hvítt og handmálað: 150 cm lengd og 18 cm breitt
    • Slifsi – Hvítt satín með fjaðramynstri, óvíst hvort náist að hreinsa – fylgir með: 160 cm lengd og 17 cm bereitt
    • Slifsi (stíl við fjólubláa svuntu): 84 cm lengd og 20 cm breitt
    • Peysubrjóst: Breidd efst: 14 cm, breidd neðst: 8 cm, lengd 25 cm og víðast 20 cm
    • Prjónaðir vettlingar, eins og nýjir: stærð 7

Fínn búningur. Farið að sjá á upphlut en gæti verið góður startpakki ef viðkomandi smellpassar í búninginn.

Eigandi er einnig til í að selja í stöku.

Það má einnig senda tilboð á viravirki[@]viravirki.is