Helstu spurningar og svör sem okkur berast varðandi víravirki.is. Ef þú finnur ekki svar við spurningu þinni er velkomið að senda línu á viravirki [@]viravirki.is
Kostnaður á þjóðbúningum og skarti er nokkuð fjölbreyttur og getur hlaupið frá um 350.000 - 3.000.000 kr. Eftir því hvernig þjóðbúning er um að ræða, hvort sé verið að kaupa notað eða nýtt, sauma sér og kaupa notað eða nýtt skart osfrv.
Það eru nokkrir hlutir sem vert er að hafa í huga þegar verið er að skoða kostnað við þjóðbúningagerð og tilheyrandi skart:
- Tegund þjóðbúnings. Peysuföt og 19.aldar upphlutur eru með nokkuð minna af skarti en aðrir búningar svo kostnaðurinn liggur meir í efni og vinnu. Faldbúningur, skautbúningur og kyrtill eru oftast með mikilli balderíngu sem krefst mikillar þolinmæði og vinnu og oft eru stokkabelti með þeim síðastnefndu. Þau geta ný verið frá 2-2,3 milljónir. Fer eftir hvort um silfur eða gyllingu er að ræða og hversu margir stokkar.
- Tegund silfurs: Nýtt eða notað, silfur eða gyllt, handgert eða steypt. Dæmi eru um að nýtt heilt sett af steyptu silfri fyrir upphlut kosti um 250.000-300.000kr en handgert kostar á bilinu 800.000-1.000.000. Eftir því hvort er um að ræða gull eða silfur. Almennt er talað um að notað silfurskart seljist á u.þ.b. hálfvirði en það fer svolítið eftir ástandi og óskum seljanda hverju sinni.
- Efniskostnaður: Efnisval getur verið mismunandi eftir tegund búnings og getur líka munað um stærð viðkomandi hvort þurfi meira eða minna af efni hverju sinni.
- Námskeiðskostnaður: Almennt mælum við með að fara á námskeið. Kostnaður gæti virkað hár í fyrstu en um er að ræða klæðskerasniðin þjóðbúning sem saumaður er undir handleiðslu þaulreyndar klæðskerameistara sem tryggja að búningurinn smellpassi.
Handgert víravirki og sérpantanir
- Annríki - Ásmundur Kristjánsson Gullsmiður (Höfuðborgarsvæðið)
- Djuls design - Júlía Þrastardóttir Gullsmiður (Akureyri og Norðurland)
- Gullkistan - Dóra G. Jónsdóttir Gullsmiður (Höfuðborgarsvæðið)
- Gull og hönnun - Karl Gústaf Davíðsson Gullsmiður (Reykjanes)
- GÞ skartgripir og úr - Ólafur G. Jósefsson Gullsmiður
- Nonni Gull - Jón Halldór Bjarnason Gullsmiður (Höfuðborgarsvæðið)
- Milla víravirki / þjóðbúningasilfur - Helga Ósk Einarsdóttir Gullsmiður (Höfuðborgarsvæðið)
Steypt þjóðbúningaskart
- Annríki - Ásmundur Kristjánsson Gullsmiður (Höfuðborgarsvæðið)
- Elín Guðbjartsdóttir Gullsmiður - (Höfuðborgarsvæðið) - Steypt víravirki
- Gullkistan - Dóra G. Jónsdóttir Gullsmiður (Höfuðborgarsvæðið)
- Gullsmiður Eyjólfur Kúld - Eyjólfur (Höfuðborgarsvæðið)
- GÞ skartgripir og úr - Ólafur G. Jósefsson Gullsmiður
- Nonni Gull - Jón Halldór Bjarnason Gullsmiður (Höfuðborgarsvæðið)
- Smiðsbúð - Helga Ósk Einarsdóttir Gullsmiður (Höfuðborgarsvæðið) - steypt víravirki
Þjóðbúningaskart í umboðssölu og uppboðum
- Annríki - þjóðbúningar og skart - Ásmundur Kristjánsson og Guðrún Hildur Rosenkjær (Höfuðborgarsvæðið)
- Gallerí Fold - Þjóðbúningaskart kemur einstaka sinnum á uppboð (Höfuðborgarsvæðið)
- Víravirki.is - Eva Michelsen (Höfuðborgarsvæðið - sendir um allan heim)
- Þjóðbúningastofan 7. í höggi - Oddný Kristjánsdóttir (Höfuðborgarsvæðið)
Þjóðbúningar - nýir, notaðir og til leigu
- Annríki - þjóðbúningar og skart - Ásmundur Kristjánsson og Guðrún Hildur Rosenkjær (Höfuðborgarsvæðið)
- Víravirki.is - Eva Michelsen (Höfuðborgarsvæðið - sendir um allan heim)
- Þjóðbúningaleiga Kolfinnu - þjóðbúningar til leigu
- Þjóðbúningastofan 7. í höggi - Oddný Kristjánsdóttir
- Þjóðbúningar og fatagerð Sólveigar - Sólveig
- Þjóðdansafélag Reykjavíkur - þjóðbúningar til leigu
Eftirfarandi aðilar bjóða námskeið í þjóðbúningagerð:
- Annríki - þjóðbúningar og skart - Guðrún Hildur Rosenkjær klæðskeri (Höfuðborgarsvæðið og landsbyggðin)
- Bunad, Þjóðbúninga- og hannyrðavinnustofa Ingu Arnar (Noregi)
- Heimilisiðnaðarfélagið - (Höfuðborgarsvæðið og Norðurland)
- Þjóðbúningafélag Vestfjarða - Anna Jakobína Hinriksdóttir og Soffía Þóra Einarsdóttir (Vestfirðir)
Eftirfarandi aðilar bjóða námskeið í silfursmíði og víravirkisgerð
- Annríki - Þjóðbúningar og skart
- Djúlsdesign - Júlía Þrastardóttir gullsmiður
- Handverkshúsið
- Tækniskólinn
- Víf silfurskart
Eftirfarandi aðilar sérsauma þjóðbúninga og/eða bjóða notaða þjóðbúninga í umboðssölu:
- Annríki - Þjóðbúningar og skart - Guðrún Hildur Rosenkjær (einnig með umboðssölu)
- Jófríður Benediktsdóttir - Kjóla- og klæðskerameistari
- Þjóðbúningastofunni 7íHöggi - Oddný Kristjánsdóttir (einnig með umboðssölu)
Almennt ættu flestir Gull- og silfursmiðir að geta lagfært, pússað og gyllt þjóðbúningasilfur.
Við mælum með að leita til þeirra Gull- og silfursmiða sem sérhæfa sig í þeirri gerð silfurs sem á við hverju sinni. Hér er smá listi yfir nokkra gull- og silfursmiði sem hafa unnið mikið með þjóðbúningasilfur og víravirki. Athugið að listinn er ekki tæmandi:
- Annríki - Ásmundur Kristjánsson Gullsmiður (Höfuðborgarsvæðið)
- Djuls design - Júlía Þrastardóttir Gullsmiður (Akureyri og Norðurland)
- Gullkistan - Dóra G. Jónsdóttir Gullsmiður (Höfuðborgarsvæðið)
- Gull og hönnun - Karl Gústaf Davíðsson Gullsmiður (Reykjanes)
- GÞ skartgripir og úr - Ólafur G. Jósefsson Gullsmiður
- Nonni Gull - Jón Halldór Bjarnason Gullsmiður (Höfuðborgarsvæðið)
- Milla víravirki /þjóðbúningasilfur - Helga Ósk Einarsdóttir Gullsmiður (Höfuðborgarsvæðið)
Æskilegast er að geyma skartið í loftþéttum umbúðum og/eða með sýrufríum silkipappír. Nánari upplýsingar eru undir umhirða þjóðbúninga og skarts.
Það má finna ýmislegt á veraldarvefnum um íslenska þjóðbúninginn og hér er listi með tenglum á nokkrar gagnlegar síður.
- Búningurinn - Myndir og upplýsingar um alla helstu þjóðbúninga Íslendingar. Vefnum er haldið úti af Þjóðbúningaráði og Þjóðminjasafni Íslands.
- Erlendir nafnastimplar - Samantekt á stimplum um allan heim
- Lifandi hefðir - Ýmislegt um lifandi hefðir á Íslandi.
- Nafnastimplar - Samantekt hjá Neytendastofu
- Nokkrir Íslenskir stimplar - Samantekt eftir Gull- og silfursmiðju Ernu ehf.
- Norskir stimplar - Norskir silfurstimplar
- Skjól og skart - Handverk og saga íslensku búninganna
- Um kvennbúninga á Íslandi - að fornu og nýju af Tímarit.is
Áhugaverðar bækur, ritgerðir og önnur rit um þjóðbúninga og menningararf Íslendinga:
- Að viðhalda menningarerfðum - Rit eftir Guðrúnu Ingimundardóttir, unnið fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið
- "Blómstranna móðir" - arfleifð Guðrúnar Skúladóttur. Menningarleg verðmæti í búningum og handverki á 18. og 19. öld - BA ritgerð á Hugvísindasviði. Höfundur: Hildur Guðrún Rosenkjær.
- Frá melankólíu til mótspyrnu: Menningararfur á Íslandi - Meistara ritgerð á félagsvísindasviði. Höfundur: Bryndís Björgvinsdóttir
- Íslenzk silfursmíð I & II- Bók eftir Þór Magnússon
- Íslenkt víravirki - BA ritgerð í Fornleifafræði, Höfundar: Þórunn Karólína Pétursdóttir og Sylvía Oddný Arnardóttir
Eftirfarandi síður og grúbbur eru að finna á Facebook:
- Annríki - Þjóðbúningar og Skart - Allskonar fróðleikur frá Hildi og Ása.
- Menningarerfðir - Grúbba stofnuð af Dóru Gullsmið. Menntamálaráðuneytið var með verkefnu til að vekja athygli á mikilvægi menningarerfða.
- Víravirki - Grúbba stofnuð af Karólínu og Sylvíu sem skrifuðu BA ritgerð um Íslenskt víravirki
- Víravirki.is - Facebook síða fyrir þennan vef
- Þjóðbúninga áhugafólk - Grúbba fyrir alla sem hafa áhuga á þjóðbúningum, kaup og sala ofl.
- Þjóðbúningar - síða fyrir alla áhugasama um þjóðbúninga - Grúbba fyrir alla sem hafa áhuga á þjóðbúningum, umræðum og fróðleik
- Þjóðbúningastofan 7íhöggi ehf. - Facebook síða Oddnýju Klæðskera
- Þjóðbúningaleiga Kolfinnu - Ýmsar gerðir af þjóðbúningum til leigu, t.d. fyrir peysufatadagana, þorrablótið ofl.
- Þjóðdansafélag Reykjavíkur - Búningaleiga, Danssýningar, Dansnámskeið ofl.
- Þjóðháttafélagið Handraðinn - Hópur fólks sem vinnur að því að viðhalda þekkingu á þjóðháttum landsins hvort sem er í handverki, tónlist, sagnahefð eða náttúru
Við hvetjum alla eigendur þjóðbúninga til að nýta hvert tækifæri til að vera í búningunum sínum, t.d. páskar, fermingar, brúðkaup, 17.júní, jól, áramót og önnur tilefni. Um er ræða afskaplega fallega og klæðilega flík sem hentar við öll hátíðleg tækifæri. Annars er hér listi yfir nokkra daga og viðburði í tengslum við Íslenska þjóðbúninginn:
- Mars - Þjóðbúningadagur Þjóðminjasafns Íslands
- 17. júní - Þjóðhátíðardagur Íslendinga
- Júní/júlí - Skottúhfan í Stykkishólmi, kringum mánaðarmótin
- 1. desember - Fullveldisdagurinn
- 24.desember - Aðfangadagur
- 31. desember - Gamlársdagur
- Skírn
- Ferming
- Brúðkaup
Skartið fer svolítið eftir því hvaða tegund af búning þú ert að gera. Annríki - Þjóðbúningar og skart hafa tekið saman miklar upplýsingar um íslenska þjóðbúninginn sem má nálgast hér.
Eftirfarandi listi er unnin upp úr heimildum frá Annríki:
- Upphlutur, 19. aldar
- Millur, 8-12 stk með reim og nál
- Brjóstnæla
- Skúfhólkur úr vírborða eða silfri
- Svuntuhnappar /svuntupar
- Upphlutur, 20.aldar
- Millur, 8-12 stk með reim og nál
- Borðapar/ borðarósir eða balderaðir silfurborðar
- Stokkabelti eða flauelsbelti með beltispari og doppum
- Brjóstnæla
- Skúfhólkur
- Ermahnappar
- Húfuprjónar
- Svuntuhnappar /svuntupar
- Armband (valkvætt)
- Hálsmen (valkvætt)
- Eyrnalokkar (valkvætt)
- Peysuföt, 19.aldar
- Brjóstnæla
- Svuntuhnappar /svuntupar
- Skúfhólkur
- Peysuföt, 20.aldar
- Brjóstnæla
- Svuntuhnappar /svuntupar
- Skúfhólkur
- Faldbúningur, 18.aldar
- Millur, 8-14 stk (eftir stærð og gerð, oftast 10-12 stk)
- Hlað, höfuðskraut við krókfald - litlir stokkar
- Faldprjónar
- Brjóstnæla
- Stokkabelti eða sprotabelti
- Festi um háls (valkvætt), t.d. kúla
- Svuntuhnappar /svuntupar
- Ermahnappar
- Faldbúningur, 19.aldar
- Millur, 8-14 stk (eftir stærð og gerð, oftast 10-12 stk)
- Hlað, höfuðskraut við krókfald - litlir stokkar
- Faldprjónar
- Brjóstnæla
- Stokkabelti eða sprotabelti
- Festi um háls (valkvætt), t.d. kúla
- Svuntuhnappar /svuntupar
- Ermahnappar
- Skautbúningur
- Spöng, koffur eða stjörnuband
- Stokkabelti
- Brjóstnæla
- Herrabúningur
- 18 tölur fyrir vestið
- 24 hnappar fyrir treyjuna
- 8 tölur fyrir buxurnar
- Barnabúningur, telpna
- Millur, 8-10 stk
- Skúfhólkur
- Flauelsbelti með beltispari og doppum (á við 20.aldar upphlut)
- Barnabúningur, drengja
- 18 tölur á vestið
- 24 tölur á treyjuna
- 8 tölur á buxurnar
Upplýsingar um þjóðbúningasaum hafa alla jafna gengið milli manna og kynslóða. Ýmis lærðu konur af öðrum heimiliskonum, ferðuðust milli bæja og lærðu hjá öðrum og þannig fluttist þekking og reynsla milli heimila og kynslóða. Í dag er hægt að sækja námskeið hjá Annaríki - Þjóðbúningar og skart, Heimilisiðnaðarfélaginu og öðrum fagaðilum til að fá leiðsögn fagaðila. Einnig er hægt að leita til fagaðila til að láta sníða fyrir sig.
Fyrir þá sem vilja spreyta sig sjálfir, þá eru til gömul rit og bækur en þau geta stundum verið illfáanleg. Meðfylgandi eru hlekkir á gögn sem eru aðgengileg í dag:
- Íslenskir þjóðbúningar I (upphlutur) inn á Bækur.is
- Íslenskir þjóðbúningar II (peysuföt) inn á Bækur.is
- Upphlutur á 20.öld, Fríður Ólafsdóttir
- Um íslenskan faldbúning inn á Bækur.is
- Hugur og hönd - skrá yfir efni, nöfn, höfunda og uppskriftir 1966-2009 inn á Tímarit.is
- Hugur og hönd 1971 - Snið að upphlut inn á Tímarit.is
- Hugur og hönd 1974 - Snið að upphlutspilsi inn á Tímarit.is
- Upphlutsskyrta - vísir inn á Tímarit.is
- Upphlutur 19.aldar eftir Elsu E. Guðjónsson