Vörulýsing
Allt skart er úr handgerðu víravirki, silfur
- Blár upphlutur með silfri og balderingu
- Millusett úr víravirki með 8 millum ásamt reim og nál – Ástand: Eins og nýtt
- Baldering – Ástand: Eins og nýtt
- Stærð upphluts: ca 8-10 / 38-40 / small
- Bolur úr bláu efni, um 75 cm í mitti og 90 cm yfir brjóst. Ástand: eins og nýr
- Pils og svunta
- Pils – veglegt ullarefni: Sídd 100 cm og mittismál ca 76 cm – Ástand: Eins og nýtt
- Svunta: sídd 80 cm og mittismál ca 76 cm
- Skyrta úr silki
- Þvermál yfir brjóst: 116 cm
- Lengd á ermi: 61-63 cm
- Bakstykki, lengd: 55 cm
- Framstykki, lengd: 49 cm
- Ástand: þarfnast hreinsunar
- Fast belti með beltispari og 10 stk af átta blaða doppum
- Húfa með skarti
- Skotthúfa úr flauel
- Skúfhólkur, 4,7 cm að lengd (gyllt silfur)
- Skúfur, 35 cm að lengd
- Skart:
- Næla (silfur)
- Eyrnalokkar (silfur)
- Húfuprjónar (gyllt silfur)
Einstaklega vel með farinn búningur. Var tekinn í gegn fyrir nokkrum árum og hefur verið geymdur vel í silkipappír ásamt öðru skarti. Búningurinn er tilbúinn til notkunar.
Hentar vel konum sem eru um 160-165 cm á hæð.
Það má einnig senda tilboð á viravirki[@]viravirki.is